27.11.2011 | 16:16
Hvenær fáum við stjórn sem stýrir landinu?
Hvernig er hægt að sitja í ríkisstjórn þar sem ráðherrar bera vantraust til annara ráðherra í stjórninni? Ef til vill þarf að breya stjórnskipulagi Íslands? Hér höfum við ráðherrastjórn þar sem hver ráðherra er einræðisherra á sínu sviði. Í nágrannalöndum okkar eru ekki ráðherrar heldur ráðmenn, ekki aðeins til að ráða heldur ráðleggja. Í þau 45 ár sem ég hef átt heimili í nágrannalöndum okkar og fylgst með í fjölmiðlum þar hef ég litið á "Minister" sem þjóna þjóðarinnar sem skoða, skipuleggja og leggja ráð sín fram fyrir stjórnina í heild. Ef stjórnin samþykkir, ef til vill með ýmsum breytingartillögum, þá er "ráðherranum" falið að koma málinu til lyktar. Þá kvarta aðrir "ráðherrrar" ekki yfir ákvörðunum annars "ráðherra" heldur vinnur stjórnin sem heild, enda þótt um samssteypustjórn sé að ræða, eins og það oftast nær er í Európu.
Hvenær fáum við ríkisstjórn sem stýrir högum Íslands, en þurfum að þola forsætisráðherra sem kvartar yfir gjörðum ráðherra sinna í fjölmiðlum landsins?
Þetta er ekki stjórnarfrumvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.11.2010 | 00:01
Ísland enn besta land í heimi?
Það var með mikillri eftirvæntinu ég sneri aftur heim til Íslands eftir 60 ára dvöl í öðrum löndum í þrem heimsálfum. Í bernskuminningum úr Biskupstungunum sá ég menn koma vel til reiða og í fjarska þekktist maðurinn á klárunum eða hundinum. Um leið og hann spýtti dökkbrúnu munnvatni á hlaðið greip hann með hýru auga í hendur heimilisfólksins og sagði: "Komdu nú blessaður og sæll." Varla nokkur þjóð nema færeyingar hafa verið eins hlýir og hjálpfúsir og íslendingar.
Við endurkomu minnar til his fagra föðurlands sýnist mér sem "Made in Florida"-hreyfingin hafi notfært sér hlýjan hug íslendinga og með erlendri sölumennsku sem breytti sælunni og blessuninni í hæ og bæ hafa komið fyrir dómurum sem hlýfa fremur eignarrétti Floridafaranna og peningastofnum þeirra en eignarrétt bóndans, kennarans, eða annara góðra ísleniinga sem enn bera hlýan hug til náunga síns með virðingu og hjálpsemi.
Annar bankastjóri hringdi í dag í móðurina sem varð fyrir þessu áfalli og tjáði henni að bankinn hans fylgist með og vildi veita henni alla þá aðstoð sem í þeirra valdi stendur. Það eru enn góðir íslendingar í sumum bönkum sem hlífa sér ekki við að veita aðstoð þegar þeir sjá óréttlætið hjá sumum keppinautum sínum. Það eru þeir sem duga til lengdar í góðu íslensku samfélagi.
Ég veit að móðirin og börnin hennar bera hlýjan hug til allra þeirra sem af heilum huga styðja þau í orði og verki. Meirihluti íslendinga eru enn af góðu bergi brotnir.
Jóhann M Þorvaldsson
Bentu þingmönnum á veiluna í lögunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jóhann M Þorvaldsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar